Þversögnin í þversögninni: Er lausnin kannski bara að loka Þrengslunum?

Þversögnin í þversögninni: Er lausnin kannski bara að loka Þrengslunum?
Vísbending síðan 1998 að fjalla um fjármögun Sundabrautar

Sundabraut hefur verið á dagskrá í meira en 35 ár. Það þarf vart að fjölyrða um hvernig þetta eina mannvirki hefur verið notað sem kosningabeita í nær hverjum einustu kosningum á þessum áratugum. Loksins þegar hillir undir að eitthvað fari að gerast - og þótt fyrr hefði verið - stígur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) fram á sjónarsviðið. Í nýrri umhverfisskýrslu sinni gerir stofnunin mikið úr svokallaðri „loftslagsþversögn“ og heldur því fram að nýr vegur muni hreinlega framkalla umferð.

Kenningin um „framboðsstýrða eftirspurn“ hljómar vissulega vel í fræðigreinum og á kaffistofum skipulagsfræðinga. Hún gerir ráð fyrir því að fólk ákveði bara að setjast undir stýri og keyra út í bláinn, eða flytja í hreppaflutningum, af því einu að það var verið að leggja nýtt malbik. En þegar rýnt er í raunveruleg gögn um fasteignamarkaðinn, hvar verið er að gefa út byggingarleyfi og hvernig framboð á húsnæði hefur þróast, kemur allt önnur og skýrari mynd í ljós. Þessi meinta útþensla byggðar er nefnilega nú þegar að gerast. Fólk og barnafjölskyldur leita unnvörpum í ódýrara sérbýli og rólegra umhverfi vegna þess að raunhæfir og hagkvæmir húsnæðiskostir inni í Reykjavík eru af skornum skammti. Þetta er þróun sem er algjörlega óháð fræðilegum umferðarlíkönum.

Það er í raun kaldhæðnislegt að einmitt HMS, sem safnar og greinir alla tölfræði fasteignamarkaðarins og byggingariðnaðarins, skuli setja þetta fram sem nýtt eða framkallað vandamál þegar þeirra eigin tölur sýna skortinn sem knýr fólk út fyrir borgina.

Með þessum rökum umhverfisskýrslunnar væri hægt að teikna upp ansi dökka framtíðarsýn. Það væri væntanlega jafn gáfulegt, samkvæmt þessari rökfræði, að hætta við alla tvöföldun Suðurlandsvegar og skella hreinlega í lás í Þrengslunum. Stríður straumur fólks nýtir sér nú þegar þessar samgönguæðar daglega til að komast í húsnæði sem alls ekki er verið að byggja innan borgarmarkanna. Við sjáum uppbygginguna í nærliggjandi sveitarfélögum blómstra einmitt vegna þess að fólk vantar þak yfir höfuðið sem það getur borgað af. Er það virkilega framtíðarsýnin í okkar samgöngumálum að refsa fólki fyrir að finna sér heimili með því að halda samgönguinnviðum í spennitreyju?

Við verðum líka að horfa á heildarmyndina hvað varðar uppbyggingu og rekstur. Atvinnulífið og byggingariðnaðurinn treysta á hnökralausa vöruflutninga og skilvirkar samgöngur. Hvort sem verið er að flytja byggingarefni fyrir ný hverfi eða dýran tæknibúnað og loftræstikerfi í atvinnuhúsnæði, þá kostar það bæði tíma og peninga að þvæla allri þungaumferð í gegnum flöskuhálsa sem hefðu átt að heyra sögunni til fyrir löngu. Að búa til öfluga tengingu frá höfninni og beint út úr bænum snýst ekki bara um fólksbíla á morgnana, heldur um blóðrás atvinnulífsins sem samfélagið reiðir sig á.

Sú sanna þversögn í málflutningi gegn Sundabraut felst í því að ætlast til þess að umferðin fari áfram hina mikið lengri og seinlegri leið um Vesturlandsveg, til þess eins að letja nokkra einstaklinga - sem annars hefðu kannski ekki gert það - frá því að flytja út fyrir borgarmörkin. Þessi refsistefna gengur einfaldlega ekki upp. Sundabraut mun vissulega gefa höfuðborgarsvæðinu aðgang að betra og meira byggingarlandi og opna ný tækifæri fyrir skipulega uppbyggingu. Það er beinlínis af hinu góða og skapar möguleika á að létta á þeim þrýstingi sem nú er á markaðnum.

Ávinningurinn af greiðari samgöngum, styttri ferðatíma fyrir íbúa allt frá Breiðholti til Borgarness og jákvæðum áhrifum fyrir þorra almennings vegur ansi sterklega upp á móti þessum teikniborðsáhyggjum um framkallaða umferð. Sé það raunverulegt vandamál að fólk flytji út fyrir borgarmörkin í leit að lífsgæðum og rými þá er það nú þegar orðið vandamál sem verður alls ekki leyst með því að draga lappirnar í nauðsynlegum innviðum í 35 ár til viðbótar. Hættum þessum endalausu frestunum.

Byggjum þessa braut.

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →