Listaháskóli Íslands
Viljayfirlýsing um framtíð Listaháskólans í Stakkahlíð undirrituð
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjóri Reykjavíkur og rektor Listaháskóla Íslands (LHÍ) undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðarstaðsetningu Listaháskólans í Stakkahlíð. Undirritunin fór fram í Listasafni Reykjavíkur, samhliða opnun útskriftarsýningar skólans. Með þessari viljayfirlýsingu er stefnt að því að sameina allar deildir Listaháskólans undir eitt þak í fyrsta