Viljayfirlýsing um framtíð Listaháskólans í Stakkahlíð undirrituð

Ljósmynd: Gu Ko / Pexels
Ljósmynd: Gu Ko / Pexels

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjóri Reykjavíkur og rektor Listaháskóla Íslands (LHÍ) undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðarstaðsetningu Listaháskólans í Stakkahlíð. Undirritunin fór fram í Listasafni Reykjavíkur, samhliða opnun útskriftarsýningar skólans.

Með þessari viljayfirlýsingu er stefnt að því að sameina allar deildir Listaháskólans undir eitt þak í fyrsta sinn frá stofnun hans. Skólinn starfar í dag í fjórum byggingum, þar á meðal í Stakkahlíð. Fyrri áform um flutning skólans í Tollhúsið og á Skólavörðuholt hafa verið felld niður, þar sem þeir kostir hefðu verið seinlegri, kallað á umfangsmeiri framkvæmdir og útgjöld, og boðið upp á takmarkaðri möguleika til framtíðaruppbyggingar.

Uppbygging í Stakkahlíð

Greiningar benda til þess að núverandi aðstaða í Stakkahlíð mæti vel fjölbreyttum þörfum Listaháskólans. Áætlað er að ráðast í endurbætur á núverandi húsnæði í fyrsta áfanga. Í öðrum áfanga verður byggt við húsnæðið til að koma fyrir sérhæfðri starfsemi sem ekki rúmast innan núverandi bygginga, byggt á þarfagreiningu.

Reykjavíkurborg mun beita sér fyrir skjótri endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins og mun ekki fara fram á greiðslu fyrir byggingarrétt við núverandi húsnæði, enda um almannaþjónustu að ræða. Stefnt er að því að skipulagslýsing um framtíðarþróun á reitnum við Laugarnesveg, sem hýsir núverandi aðstöðu skólans, liggi fyrir eigi síðar en í nóvember. Ágóði ríkisins af sölu á þeim reit mun renna til fjárfestingarinnar í Stakkahlíð. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun tryggja að Listaháskólinn geti staðið undir leigu á endurbættu húsnæði og framtíðaruppbyggingu í næstu fjárlögum og fjármálaáætlun.

Sjá nánar: reykjavik.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →