Höfuðborgarsvæðið og ríkið í samstarf um sérskóla: Áætlað að 360 börn þurfi úrræði
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkið hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða. Markmiðið er að tryggja að börn með sérþarfir fái þjónustu sem styður við farsæld þeirra, virkni og menntun. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarneskaupstaður, ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.
Samstarfið byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Niðurstöður greiningarinnar benda til þess að samstarfið sé bæði raunhæft og fýsilegt, og að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflugri, sjálfbærari og fjölbreyttari úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.
Áætlaðar þarfir og framtíðarskipulag
Samkvæmt greiningunni er áætlað að um 360 börn á grunnskólaaldri á höfuðborgarsvæðinu uppfylli skilyrði fyrir sérskólaúrræði á hverjum tíma, sem samsvarar um 1,0-1,3% af grunnskólabörnum. Í dag eru rúmlega 200 börn í sérskólum og um 160 börn í öðrum sérúrræðum innan grunnskóla.
Í samstarfinu verður horft til uppbyggingar langtíma sérskólaúrræða, fjölbreyttra skammtímaúrræða og eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla. Skipaður verður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan úrræðanna, þar á meðal um uppbyggingu nýrra sérskóla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok árs 2026.
Í sameiginlegri yfirlýsingu stjórnar SSH segir að samstarf ríkis og sveitarfélaga sé mikilvægt til að sameina eftirspurn, fagþekkingu og fjármuni. Þannig megi byggja upp stærri og stöðugri rekstrareiningar sem veita börnum betri og sérhæfðari þjónustu en núverandi fyrirkomulag gerir.
Sjá nánar: stjornarradid.is