Ísland
Þurfa að leggja nýja klæðningu á hluta vegarins
Vegagerðin hefur tilkynnt að nauðsynlegt sé að leggja nýja klæðningu á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela vegna skemmda sem komu fram skömmu eftir útlögn. Verktaki mun fræsa upp og leggja klæðningarlagið að nýju á um eins kílómetra kafla.