Ákveðið að ljúka útlagningu NSL-4 til að lágmarka frekara tjón
Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að halda áfram og ljúka útlagningu á almannavarnarlögninni NSL-4, þrátt fyrir að bærinn telji að um altjón á lögninni sé að ræða eftir atvik aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Ákvörðunin er tekin í þeirri von að hægt ver
Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að halda áfram og ljúka útlagningu á almannavarnarlögninni NSL-4, þrátt fyrir að bærinn telji að um altjón á lögninni sé að ræða eftir atvik aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Ákvörðunin er tekin í þeirri von að hægt verði að nýta lögnina að einhverju marki.
Í samskiptum við verktakann Subsea 7, sem sér um útlagninguna, hefur komið fram að þetta sé skynsamlegasta skrefið til að lágmarka frekari kostnað. Útlagningin mun þó ekki hefjast að nýju fyrr en uppfært áhættumat og önnur nauðsynleg skjöl hafa verið samþykkt, til að tryggja fyllsta öryggi við framhaldið.
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að ákvörðunin um áframhaldandi útlagningu felur ekki í sér viðurkenningu á ábyrgð á atvikinu eða tjóninu. Öll réttindi sveitarfélagsins eru óskert og tryggingamál vegna málsins munu halda áfram í sínum eðlilega farvegi.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Vestmannaeyjabær
Heimild: Vestmannaeyjabær