Ísland
Gjaldtaka hafin á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót
Gjaldtaka hófst á miðnætti yfir nýja brú yfir Hornafjarðarfljót. Brúin var tekin í notkun 24. júní og hefur verið gjaldfrjáls síðan þá. Kostnaður við framkvæmdina nam tíu milljörðum króna og er ætlað að veggjöldin standi undir hluta hans.