Útskolun Grábrókarveitu hefst í dag
Í dag, þriðjudaginn 1. september, hefst útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi. Verkinu er ætlað að ljúka innan 2-3 vikna.
Veitur hefja í dag, þriðjudaginn 1. september, útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi. Markmiðið er að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er.
Áætlað er að verkinu ljúki innan 2 til 3 vikna. Á meðan á útskolun stendur yfir má búast við lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi.
Einnig getur útskolunin valdið gruggi í vatninu, sérstaklega á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. Ef vatnið er gruggugt er ráðlagt að láta kalt vatn renna um stund þar til það verður tært.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn