Ísland
Föngunarkerfi Steingerðar á Hellisheiði fangar nær allt koldíoxíð
Föngunarkerfi lofthreinsistöðvarinnar Steingerðar við Hellisheiðarvirkjun leysti upp 99,6% þess koldíoxíðs sem inn í það barst á tímabilinu 1. júlí 2025 til 30. júní 2026. Auk koldíoxíðs var allt brennisteinsvetni fangað. Steingerður er samstarfsverkefni Carbfix og Orku náttúrunnar.