„Sáralítið gerst“ og engar formlegar viðræður um kjarasamninga

Verkalýðshreyfingin hefur ekki fengið næg svör frá stjórnvöldum til að ákveða hvort tilefni sé til að rjúfa kjarasamninga, segir forseti ASÍ. Engar formlegar viðræður hafa hafist ennþá.

„Sáralítið gerst“ og engar formlegar viðræður um kjarasamninga
Mynd: Jan van der Wolf / Pexels

Forsendur kjarasamninga eru taldar hafa brostið þegar verðbólga mældist yfir viðmiði í ágúst. Það gefur verkalýðshreyfingunni heimild til að rift samningum fyrir 8. október.

„Það eru svona þreifingar í gangi en það verður að vera komin alvara í þetta í næstu viku ef þetta á að nást saman,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Hann bætir við að margir þurfi að koma að samningaborðinu og ná saman til að kjarasamningar haldi.

„Þar eru meðal annars sveitarfélög sem hafa verið að hækka gjaldskrár sínar allt of mikið og það eru fyrirtæki sem þurfa að undirgangast það aftur að þau taki undir með okkur um það að reyna að ná niður verðbólgu. Það er okkar markmið í þessari endurskoðun, eins og þegar við gerðum kjarasamningana 2024.“

Fjármálaráðherra lét nýverið í ljós að honum þætti furðulegt fyrirkomulag að ríkið niðurgreiddi kjarasamninga á almennum markaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra sagði stjórnvöld hafa ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur brustu, en það myndi þó aldrei vera á kostnað hallalausra fjárlaga.

Forsætisráðherra ræddi um þríhliða samtal ríkis, vinnumarkaðarins og verkalýðshreyfingarinnar á blaðamannafundi í gær. Finnbjörn kveðst hóflega bjartsýnn á viðbrögð stjórnvalda.

„Það hefur bara sáralítið sem ekkert gerst í þessum viðræðum, því þetta hafa ekki verið neinar formlegar viðræður, við höfum bara verið í spjalli við ríkisstjórnina. En núna stendur til að fara í alvöru viðræður um hvað ríkisstjórnin er tilbúin til að gera til að liðka til að samningar haldi.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn