Skoðun
Stóri fíllinn í herberginu: Tómar nýbyggingar og læstar dyr fyrir ungt fólk
Á sama tíma og yfir 1.400 nýbyggingar standa tómar situr ungt fólk fast á rándýrum leigumarkaði. Stjórnvöld eyða tímanum í innantómar rökræður um Evrópusambandið í stað þess að horfast í augu við stóra fílinn í herberginu: ósveigjanlegt greiðslubyrðarhlutfall og himinháa stýrivexti.