Ísland
Frumhönnun og kostnaðarmat á endurbótum Bræðslubryggju
Hafnarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur samþykkt að hefja frumhönnun og kostnaðarmat vegna endurbóta á Bræðslubryggju. Ákvörðunin var tekin í kjölfar bréfs frá Vegagerðinni þar sem rætt var um möguleika á að flýta framkvæmdum.