Ísland
Kjarvalsstaðir – aðkomusvæði
Aðkoma að Kjarvalsstöðum hefur verið bætt til muna með endurgerð á tröppum, uppsetningu hjólastólarampa og nýrri lýsingu. Framkvæmdirnar, sem fram fóru í nóvember og desember 2023, miða að því að tryggja betra aðgengi og aukið öryggi fyrir alla gesti menningarstofnunarinnar.