Ísland
Atvinnuleysi nær toppi og laun hækka hægar
Líklegt er að atvinnuleysi nái toppi á árinu og laun hækki hægar en áður, að öðru óbreyttu. Þetta tvennt endurspeglar aukinn slaka á vinnumarkaði. Óvissa ríkir þó um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, en horfur eru á að forsenduákvæði komi til endurskoðunar í september.