Ísland
Tugmilljóna tjón fyrir Samhjálp og þrýstingur á að finna húsnæði til frambúðar
Samhjálp verður fyrir tugmilljóna króna tjóni eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í gær úr gildi byggingarleyfi fyrir fyrirhugaða kaffistofu við Grensásveg í Reykjavík. Starfsemin verður áfram í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu um sinn en óvíst er hversu lengi.