Framtíðin og fjöreggið okkar: Landsvirkjun og orkuþróun Íslands
Ísland hefur um áratugaskeið verið í fararbroddi þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og hefur Landsvirkjun verið lykilaðili í þeirri þróun. Fyrirtækið fagnaði í fyrra 60 ára farsælum star
Ísland hefur um áratugaskeið verið í fararbroddi þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og hefur Landsvirkjun verið lykilaðili í þeirri þróun. Fyrirtækið fagnaði í fyrra 60 ára farsælum starfsafmæli og er saga þess samofin þeirri ótrúlegu uppbyggingu sem hefur átt sér stað í orkuvinnslu, flutningi og iðnaði á Íslandi. Þessi uppbygging hefur ekki aðeins stuðlað að hagsæld og bættum lífskjörum þjóðarinnar, heldur einnig skapað öflugt atvinnulíf og raforkukerfi sem er einstakt á heimsvísu.
Landsvirkjun hefur ávallt leitast við að þróast í takt við samfélagið og hefur undanfarið ár tekið mikilvæg skref inn á skipulagða raforkumarkaði. Margir spyrja eflaust hvers vegna slíkir markaðir séu nauðsynlegir. Raforkumarkaðir eru af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá stórnotendamarkaði til heildsölumarkaða þar sem viðskipti fara fram í tímann, og kerfisþjónustumarkaða. Þessir markaðir eiga það sameiginlegt að stuðla að skilvirkri verðmyndun og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Þeir auka gegnsæi og jafnræði, bæta nýtingu raforkukerfisins og hvetja til nýsköpunar og fjárfestinga, sem allt er til hagsbóta fyrir samfélagið.
Raforkuviðskipti á Íslandi hafa verið afar virk síðustu tvo áratugi og tekið miklum breytingum. Það er einstakt hversu vel við búum hér á landi, en raforkuvinnsla er 100% endurnýjanleg. Þetta setur okkur í sérstöðu á heimsvísu og sýnir að við höfum náð því markmiði sem önnur lönd keppast við að ná. Sterk orkufyrirtæki hafa vaxið mjög fiskur um hrygg, aukið orkuvinnslu um meira en 400 MW á síðustu tveimur áratugum og keppa sín á milli. Þessi samkeppni skilar sér í lægsta og stöðugasta raforkuverði til almennings á Norðurlöndum, samkvæmt tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Raforkukerfið hefur sýnt mikinn viðnámsþrótt þegar áföll hafa dunið yfir, og hefur tekist að komast í gegnum erfiðleika í orkuframboði án þess að neyðarástand hafi myndast. Þessar staðreyndir undirstrika mikilvægi Landsvirkjunar og annarra orkufyrirtækja í að tryggja stöðugleika og framþróun á Íslandi.
Heimild: isor.is