Timburbygging
Áhersla á sjálfbær byggingarefni á Nýsköpunarviku
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og IÐAN Fræðslusetur stóðu fyrir vel sóttum viðburði á Nýsköpunarvikunni þar sem sjálfbær mannvirkjagerð og framtíðarsýn í byggingarefnum voru í brennidepli. Rætt var um mikilvægi þess að velja rétt efni á réttan stað, með líftíma og umhverfisáhrif í huga.