Áhersla á sjálfbær byggingarefni á Nýsköpunarviku

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og IÐAN Fræðslusetur stóðu fyrir vel sóttum viðburði á Nýsköpunarvikunni þar sem sjálfbær mannvirkjagerð og framtíðarsýn í byggingarefnum voru í brennidepli. Rætt var um mikilvægi þess að velja rétt efni á réttan stað, með líftíma og umhverfisáhrif í huga.

Áhersla á sjálfbær byggingarefni á Nýsköpunarviku
Mynd: Nishant Aneja / Pexels

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og IÐAN fræðslusetur stóðu fyrir viðburðinum „Timbur vs. steypa – rannsóknir, framleiðsla, hönnun og uppbygging til framtíðar“ þann 29. apríl síðastliðinn. Viðburðurinn var hluti af Nýsköpunarvikunni og vakti mikla athygli meðal fagfólks í mannvirkjagerð. Megináherslan var á nýsköpun, þekkingu og framtíðarsýn í vali og notkun byggingarefna á Íslandi.

Heimild: https://hms.is/frettir/allar-frettir/nyskopun-i-mannvirkjagerd/

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →