Fréttir
Framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð Strætisvagna Akureyrar hafnar
--- Framkvæmdir eru hafnar við nýja söfnunarstöð fyrir Strætisvagna Akureyrar við Borgarbraut, á móti Glerártorgi. Samhliða þessum framkvæmdum verður einnig byggð ný göngubrú yfir Glerá og lagðir nýir göngustígar, sem miða að því að bæta aðgengi og tengingar á svæðinu. Söfnunarstöðin mun hýsa biðskýli, aðstöðu fyrir vagnstjóra, tæknirými og almenningssalerni.