Árneshreppur
Sameiningarkosning Árneshrepps og Kaldrananeshrepps ógilt – kjörstaðir ekki opnir á auglýstum tíma
Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fram fóru í mars. Ástæðan er ágalli á framkvæmd kosninganna í Árneshreppi, þar sem ekki var tryggt að kjósendur gætu greitt atkvæði á auglýstum opnunartíma kjörstaða. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Ráðuneytið telur að kjósendur verði að