Sameiningarkosning Árneshrepps og Kaldrananeshrepps ógilt – kjörstaðir ekki opnir á auglýstum tíma

Ljósmynd: Bibesh Manandhar / Pexels
Ljósmynd: Bibesh Manandhar / Pexels

Innviðaráðuneytið hefur ógilt íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fram fóru í mars. Ástæðan er ágalli á framkvæmd kosninganna í Árneshreppi, þar sem ekki var tryggt að kjósendur gætu greitt atkvæði á auglýstum opnunartíma kjörstaða. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Ráðuneytið telur að kjósendur verði að geta treyst því að kjörstaðir séu opnir á auglýstum tíma. Það var mat ráðuneytisins að takmarkað aðgengi að kjörstað hafi hugsanlega dregið úr kosningaþátttöku í Árneshreppi, sem telst vera verulegur ágalli og leiðir til ógildingar kosninganna.

Kæra barst ráðuneytinu vegna íbúakosningarinnar í apríl innan lögmælts frests. Meðan kæran var til meðferðar var ekki unnt að staðfesta sameiningu sveitarfélaganna. Þar sem framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga rann út og kosning hófst formlega samkvæmt kosningalögum, er ljóst að kosningar fara fram í hvoru sveitarfélagi fyrir sig á morgun, 16. maí.

Ný kosning fram

Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga kveður á um að ef kosning er úrskurðuð ógild skuli fara fram ný íbúakosning, svokölluð uppkosning. Um er að ræða endurtekningu á fyrri kosningu með sömu kjörskrá. Sveitarstjórnum sveitarfélaganna ber að ákveða í sameiningu hvenær uppkosning fer fram.

Sjá nánar: visir.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →