Ísland
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkir múrviðgerðir á Reykhólaskóla
Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur samþykkt tilboð Múrtækni ehf. í múrviðgerðir á kennsluálmu Reykhólaskóla. Verkið hefst strax og felur meðal annars í sér að hreinsa ysta lag múrs af veggjum, brjóta lausan múr, loka sprungum og endurgera vatnsbretti.