Fréttir
Reir stofnar óhagnaðardrifið leigufélag með milljarðs króna stofnframlagi frá Reykjavíkurborg
Reir ehf., móðurfélag verktakafyrirtækisins Reir verks, undirbýr nú stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags undir merkjum Reir íbúðafélags. Reykjavíkurborg hefur samþykkt að veita hinu óstofnaða félagi stofnframlag upp á 984 milljónir króna vegna byggingar 120 íbúða á Stórhöfða. Þetta framlag samsvarar 12% af áætluðu stofnvirði verkefnisins, sem er um 8,2 milljarðar króna.