Reir stofnar óhagnaðardrifið leigufélag með milljarðs króna stofnframlagi frá Reykjavíkurborg

Ljósmynd: Benjamin Alanis Ibarra / Pexels
Ljósmynd: Benjamin Alanis Ibarra / Pexels

Reir ehf., móðurfélag verktakafyrirtækisins Reir verks, undirbýr nú stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags undir merkjum Reir íbúðafélags. Reykjavíkurborg hefur samþykkt að veita hinu óstofnaða félagi stofnframlag upp á 984 milljónir króna vegna byggingar 120 íbúða á Stórhöfða. Þetta framlag samsvarar 12% af áætluðu stofnvirði verkefnisins, sem er um 8,2 milljarðar króna.

Félagið verður húsnæðissjálfseignarstofnun (hses.), en slíkum félögum er heimilt að fá stofnframlög frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og sveitarfélögum vegna byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Forsenda fyrir framlagi borgarinnar er að HMS veiti einnig stofnframlag ríkisins innan þriggja mánaða. Heildarstofnframlag ríkis og sveitarfélags getur orðið allt að 30% eða hærra.

Rannveig Eir Einarsdóttir, forstjóri og eigandi Reir verks, segir í samtali við Viðskiptablaðið að félagið telji mikilvægt að einkaaðilar taki virkan þátt í að byggja upp langtímalausnir á húsnæðismarkaði. Hún bendir á að rekstur leigufélagsins verði alveg aðskilinn byggingarverkefninu og að öll verð hafi verið yfirfarin og samþykkt af HMS til að tryggja gagnsæi og ábyrga nýtingu opinberra fjármuna.

Sjá nánar: vb.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →