Íbúðamarkaður
Nýjar íbúðir sitja á lager – seljast ekki á ásettu verði
Staðan á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni einkennist nú af miklum fjölda óseldra nýrra íbúða, en þær seljast ekki á ásettu verði. Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) eru tæplega 1.500 nýjar íbúðir óseldar á höfuðborgarsvæðinu einu, auk rúmlega 2.200 eldri íbúða sem einnig eru á sölu.