Kópavogur
Kópavogsbær leitar að nafni á nýja menningarmiðstöð í Smáralind
Kópavogsbær hefur boðað til nafnasamkeppni vegna nýrrar menningarmiðstöðvar sem opna á í Smáralind á næsta ári. Miðstöðin mun sameina bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði á 900 fermetra svæði austast í Smáralind. Tillögum verður tekið á vef Kópavogsbæjar til 1. júní næstkomandi. Dómnefnd skipuð Braga Valdimar Skúlasyni, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og