Kópavogsbær leitar að nafni á nýja menningarmiðstöð í Smáralind
Kópavogsbær hefur boðað til nafnasamkeppni vegna nýrrar menningarmiðstöðvar sem opna á í Smáralind á næsta ári. Miðstöðin mun sameina bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði á 900 fermetra svæði austast í Smáralind.
Tillögum verður tekið á vef Kópavogsbæjar til 1. júní næstkomandi. Dómnefnd skipuð Braga Valdimar Skúlasyni, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Hrafnhildi Davíðsdóttur mun fara yfir innsendar tillögur. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir handhafa sigurtillögunnar.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir að menningarmiðstöðin muni skapa ný tækifæri í menningarlífi bæjarins og verða viðbót við menningarhús bæjarins í Hamraborg. Basalt arkitektar hanna menningarmiðstöðina.
Sjá nánar: mbl.is