Leikskóli
Fyrsta áfanga byggingar nýs leikskóla á Seltjarnarnesi lokið
Fyrsta áfanga í byggingu nýs leikskóla á Seltjarnarnesi, Undrabrekku, er nú lokið en húsið er formlega komið undir þak. Þessi áfangi markar mikilvæg tímamót í framkvæmd verkefnisins, sem stefnt er að ljúka sumarið 2027. Í tilefni af þessum áfanga bauð verktakafyrirtækið Aðalvík til reisugillis á verkstað fimmtudaginn 7. maí síðastliðinn.