Húsnæðismál
Kaupsamningum fjölgar en fasteignamarkaður enn í höndum kaupenda
Kaupsamningum um fasteignir fjölgaði milli febrúar og mars á þessu ári, en voru færri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), sem einnig bendir á að markaðurinn sé enn í höndum kaupenda og að spáð sé áframhaldandi raunverðshækkunum á næsta ári.