Heimildin
Veðurstofan varar við: Ný hverfi í Hafnarfirði og Reykjavík á hugsanlegum hraunfarvegum
Á sama tíma og þrýstingur eykst á uppbyggingu nýrra íbúðahverfa á höfuðborgarsvæðinu, stendur byggingariðnaðurinn frammi fyrir nýjum veruleika jarðhræringa. Nýjar upplýsingar frá Veðurstofu Íslands varpa ljósi á að stórir hlutar efri byggðar höfuðborgarsvæðisins, þar á meðal ný skipulögð hverfi, liggja á svæðum þar sem hugsanlegt er að hraun renni eða