Vöruhúsið tekur við matarþjónustu fyrir eldri borgara

Vestmannaeyjabær flytur matarþjónustu fyrir eldri borgara í Vöruhúsið við Vestmannabraut 28. Framkvæmdir hefjast í byrjun ágúst og er gert ráð fyrir að þjónustan hefjist að nýju í byrjun september.

Vöruhúsið tekur við matarþjónustu fyrir eldri borgara
Mynd: Braggi.is

Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að færa matarþjónustu fyrir eldri borgara í Vöruhúsið, sem staðsett er við Vestmannabraut 28.

Með þessari breytingu verður eldhús og matsalur flutt úr húsnæði Hraunbúða. Áætlað er að framkvæmdir við að gera Vöruhúsið hæft fyrir nýja starfsemi hefjist í byrjun ágúst.

Flutningurinn er hluti af endurskipulagningu á þjónustu við eldri borgara í Vestmannaeyjum. Í Vöruhúsinu verður boðið upp á hádegismat alla virka daga, en ekki um helgar eins og áður var í Hraunbúðum. Markmiðið er að hagræða í rekstri og nýta betur tilbúið húsnæði.

Á meðan framkvæmdir standa yfir í Vöruhúsinu verður engin matarþjónusta í boði. Gert er ráð fyrir að þjónustan hefjist að nýju í Vöruhúsinu í byrjun september. Vestmannaeyjabær mun senda út nánari upplýsingar til notenda þjónustunnar þegar nær dregur.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Tígull

Heimild: Tígull

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →