„Vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur“

Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist.Verðbólga hefur verið yfir 5% það

„Vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur“
Mynd: Zaur Takhgiriev / Pexels

Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist.Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Hækkun opinberra gjalda og áhrif stríðsátaka í Mið-Austurlöndum auki verðbólgu.„Þetta er auðvitað vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.„Við höfum verið með verðbólguvæntingar á aðeins of háum stað það sem af er þessu ári. Við fórum vel af stað, verðbólga var vel undir 4% fyrsta ár þessarar ríkisstjórnar og við vorum í vaxtalækkunarfasa. Við héldum að við værum komin með þetta síðasta desember en svo dynja á okkur áföll og sum ráðum við ekki við og þetta er bara staðan sem að við finnum okkur í.“Seðlabankinn hefur bent á að hætta sé á að hækkun opinberra gjalda smitist víðar út í hagkerfið og festi aukna verðbólgu í sessi. Störfum í opinbera geiranum hafi fjölgað á sama tíma og þeim fækki í einkageiranum. Launahækkanir eru mestar hjá hinu opinbera og það eigi einnig við um verðhækkanir.Tekur þú til þín það sem stendur í Peningamálum og það sem kom fram á fundi forsvarsmanna Seðlabankans í vikunni?„Það liggur alveg fyrir að aðhaldsstig opinberra fjármála er ágætt, það sést bara á tölunum. Það er auðvitað alltaf verið að finna einhvern til að benda á og við tökum það til okkar. Við berum ábyrgð á efnahagsmálunum og þess vegna erum við að leggja fram fyrstu hallalausu fjárlögin núna í haust, í að verða áratug, og við tökum það til okkar,“ segir Kristrún.„Ég hef heyrt þessa umræðu varðandi hækkun opinberra útgjalda. Mig langar hins vegar að benda á að í janúar voru þær hækkanir sem við stóðum fyrir ekki hærri en þær sem við höfum séð á undanförum árum og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist.“Eruð þið ekki að róa í sömu átt, þið í ríkisstjórninni og Seðlabankinn?„Aðhaldsstig ríkisfjármálanna er eðlilegt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sjálfur bent á það að það sé á góðum stað og þær gjaldabreytingar sem við höfum séð til að standa undir eðlilegri þjónustu í landinu og gjaldskrár sem hafa ekki verið uppfærðar í langan tíma og geta þannig rýrt nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, velferðarþjónustu og annað. Við þurfum auðvitað að huga að því,“ segir Kristrún.„Eins varðandi vegakerfið og kílómetragjöldin, auðvitað þarf að passa upp á þetta. Og ég viðurkenni alveg að væntingarnar eru lausari en við héldum að þær væru í desember og við þurfum að taka mið af því fram á veginn.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn