Vinna hafin við nýtt áhættumat fyrir Grindavík
Vinna við nýtt áhættumat fyrir Grindavíkurbæ er hafin. Áhættumatið á að veita skýrar forsendur fyrir næstu skrefum í uppbyggingu og samfélagslífi bæjarins, með öryggi íbúa að leiðarljósi.
Vinna við nýtt áhættumat fyrir Grindavíkurbæ er hafin. Bæjarráð Grindavíkur fagnaði þessum áfanga á fundi sínum í gær.
Áhættumatið á að veita skýrar forsendur fyrir næstu skrefum í uppbyggingu og samfélagslífi bæjarins, með öryggi íbúa að leiðarljósi.
Á fundi bæjarráðs voru lögð fram fyrstu vinnugögn og fundargerðir frá tveimur sérstökum verkefnahópum sem þegar hafa hafið störf. Þessir hópar einbeita sér annars vegar að skólahaldi í Grindavík og hins vegar að öryggi í Grindavík.
Bæjarráð bindur miklar vonir við niðurstöður vinnunnar og undirstrikar að öryggi verði ávallt í fyrsta sæti þegar ákvarðanir um framhaldið verða teknar. Þessi vinna er mikilvægur liður í að skapa traustan grunn fyrir framtíðarþróun bæjarins og tryggja að allar framkvæmdir og ákvarðanir séu byggðar á ítarlegu mati á áhættuþáttum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt