Vilja ný tilboð í tröppurnar

Eina tilboð sem barst í endurgerð á tröppum við Ráðhús Árborgar á Selfossi var langt yfir kostnaðaráætlun og því hafnað.

Vilja ný tilboð í tröppurnar
Mynd: needpix.com (CC0)

Eina tilboðið sem barst í endurgerð á tröppunum við Ráðhús Árborgar á Selfossi var langt yfir kostnaðaráætlun. Eigna- og veitunefnd sveitarfélagsins taldi því ekki annað fært en að hafna tilboðinu.

Kostnaðaráætlun fyrir verkið var 69,3 milljónir króna. Vörðufell hf. bauðst hins vegar til að sinna endurgerðinni fyrir tæpar 110 milljónir króna, sem var 58% hærra en áætlað var. Nefndin hefur nú ákveðið að óska eftir nýjum tilboðum í verkið.

→ Lesa upprunaleg grein á Morgunblaðið-Innlent

Heimild: Morgunblaðið-Innlent

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →