Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Vestfjörðum
2026-10-29 · Suðurgata 12 á Ísafirði · Fimmtudaginn 29. október halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Vestfjarðarstofu opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vestfjarðarstofu við Suðurgötu 12 á
Fimmtudaginn 29. október halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Vestfjarðarstofu opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vestfjarðarstofu við Suðurgötu 12 á Ísafirði, kl. 11:45 og er opinn öllum. Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Dagskrá Staðan í Ísafjarðarbæ Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur Tryggvi Magnússon, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS Mannvirkjaskrá Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS Skipulagsmál – helst á döfinni Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS Fundarstjóri verður Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu. Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
📅 Dagsetning: 29.10.2026 kl. 11:45-12:45
📍 Staðsetning: Suðurgata 12 á Ísafirði
🏛️ Umsjón: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)