Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Norðurlandi eystra
2026-11-09 · Húsnæði HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107 · Mánudaginn 9. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSNE opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Norðurlandi eystra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS við Hafnarstræti 107
Mánudaginn 9. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSNE opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Norðurlandi eystra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS við Hafnarstræti 107 á Akureyri, kl. 12 og er opinn öllum. Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Einnig það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum, eftirlitsmálum í mannvirkjagerð og tillögum að breytingum ásamt því að farið verður yfir starfsemi slökkviliða. Dagskrá Staðan á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS Mannvirkjaskrá Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS Skipulagsmál – helst á döfinni Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS Breytt byggingareftirlit og einföldun regluverks Jörundur Ragnar Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá HMS Starfsemi slökkviliða og stjórntæki sveitarfélaga Helga Einarsdóttir, teymisstjóri brunavarna og slökkviliða hjá HMS Fundarstjóri verður Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE. Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
📅 Dagsetning: 09.11.2026 kl. 12:00-13:00
📍 Staðsetning: Húsnæði HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107
🏛️ Umsjón: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)