Vetrarþjónusta stofnanalóða í Hafnarfirði 2026-30: Snjóhreinsun bílastæða
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að semja við verktaka um snjóhreinsun bílastæða innan stofnanalóða í Hafnarfirði til fjögurra ára, með möguleika á framlengingu til tveggja ára, og er skilafrestur tilboða 12. maí 2026 kl. 11:30.
Hafnarfjarðarbær býður út vetrarþjónustu stofnanalóða í Hafnarfirði 2026-30, með útboðsnúmerið hfj-2026-2. Verkkaupi, Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar, óskar eftir að semja við verktaka til fjögurra ára, með möguleika á framlengingu til tveggja ára, eitt ár í senn. Verkið felur í sér snjóhreinsun bílastæða innan stofnanalóða í Hafnarfirði.
Snjómoksturssvæðum er skipt í fimm útboðssvæði: Svæði 1 – Norðurbær og Hraun, Svæði 2 – Fjörður (miðbærinn), Svæði 3 – Setberg og Ásland III, Svæði 4 – Suðurbær, Holt og Ásland, og Svæði 5 – Vellir og Skarðshlíð. Verktaka er heimilt að bjóða í eitt eða fleiri útboðssvæði.
Helstu magntölur eru: Svæði 1. 13.582 m², Svæði 2. 22.156 m², Svæði 3. 11.705 m², Svæði 4. 15.588 m², Svæði 5. 16.924 m².
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 27. apríl 2026 kl. 00:00. Beiðni skal senda á Ishmael David á netfangið ishmael@hafnarfjordur.is. Upplýsingar sem þurfa að koma fram við beiðni eru nafn fyrirtækis, kennitala fyrirtækis, nafn umsækjanda ásamt símanúmeri. Skilafrestur tilboða er 12. maí 2026 kl. 11:30 og opnun tilboða fer fram sama dag kl. 11:30.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is