Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs í kvöld
Vegagerðin hefur veitt heimild fyrir malbikunarframkvæmdum á Vesturlandsvegi við Esjumela, sem hefjast að kvöldi sunnudagsins 31. maí og standa fram á nótt, ef veður leyfir. Áætlað er að fræsa og/eða malbika 670 metra langan kafla á Vesturlandsvegi.
Vegagerðin hefur veitt heimild fyrir malbikunarframkvæmdum á Vesturlandsvegi við Esjumela, sem hefjast að kvöldi sunnudagsins 31. maí og standa fram á nótt, ef veður leyfir. Áætlað er að fræsa og/eða malbika 670 metra langan kafla á Vesturlandsvegi. Framkvæmdirnar eru fyrirhugaðar frá klukkan 19:00 í kvöld til klukkan 02:00 um nóttina.
Vegna framkvæmdanna verður Hringvegurinn lokaður til norðurs við Þingvallaveg. Vegfarendum verður beint um hjáleiðir sem liggja um Þingvallaveg (36), Kjósarskarðsveg (48) og Hvalfjarðarveg (47). Umferðastýring verður á verksvæðinu á meðan framkvæmdir standa yfir og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Umferð á leið til suðurs mun hins vegar fara meðfram vinnusvæðinu. Colas hefur sent frá sér tilkynningu þar sem vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, þar sem menn og tæki eru nálægt akstursbrautum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn