Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs á sunnudagskvöld
Vegagerðin hefur veitt leyfi fyrir malbikunarframkvæmdum á Vesturlandsvegi við Esjumela, að því gefnu að veður leyfi. Áætlað er að fræsa og/eða malbika 670 metra langan kafla á Vesturlandsvegi að kvöldi sunnudagsins 31. maí og fram á nótt. Framkvæmdi
Vegagerðin hefur veitt leyfi fyrir malbikunarframkvæmdum á Vesturlandsvegi við Esjumela, að því gefnu að veður leyfi. Áætlað er að fræsa og/eða malbika 670 metra langan kafla á Vesturlandsvegi að kvöldi sunnudagsins 31. maí og fram á nótt. Framkvæmdirnar munu standa frá klukkan 19:00 sunnudaginn 31. maí til klukkan 02:00 um nóttina.
Á meðan framkvæmdum stendur verður Hringvegurinn lokaður til norðurs við Þingvallaveg. Vegfarendum verður beint um hjáleiðir um Þingvallaveg (36), Kjósarskarðsveg (48) og Hvalfjarðarveg (47). Umferðastýring verður á verksvæðinu og viðeigandi merkingar og hjáleiðir settar upp. Umferð á leið til suðurs mun hins vegar fara meðfram vinnusvæðinu. Colas hefur sent frá sér tilkynningu þar sem vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn