Vesturbæjarlaug opnar á ný eftir viðhaldslokun
Vesturbæjarlaug opnar á ný í dag, föstudaginn 3. júlí, eftir viðhaldslokun. Framkvæmdum við barnalaug, kalda pottinn og aðra aðstöðu er lokið.
Vesturbæjarlaug verður opnuð á ný í dag, föstudaginn 3. júlí, klukkan 15:00. Sundlaugin hefur verið lokuð frá 23. júní vegna viðhalds. Framkvæmdum við barnalaug, kalda pottinn og aðra aðstöðu er nú lokið.
Opnun laugarinnar tafðist um nokkra daga til að tryggja fullnægjandi þurrkun á málningu barnalaugarinnar. Viðhaldsframkvæmdir gengu vel og hefur barnalaugin náð eðlilegu hitastigi. Framkvæmdum við kalda pottinn lauk einnig fyrr en upphaflega var áætlað. Því verða barnalaug, heitir pottar, kaldi potturinn, eimbað og sánur öll opin gestum við opnun.
Aðallaugin, sem byrjað var að fylla síðdegis í gær, verður um 12°C við opnun í dag. Gert er ráð fyrir að hún nái hefðbundnu hitastigi á morgun, laugardaginn 4. júlí.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg
Heimild: Reykjavíkurborg