Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit Skálanes – Hallsteinsnes

Vegagerðin býður út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð, með skilafresti 14. júlí 2026.

Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit Skálanes – Hallsteinsnes
Mynd: paul / Pexels

Vegagerðin býður út nýbyggingu Vestfjarðavegar (60) um Gufudalssveit Skálanes – Hallsteinsnes, útboðsnúmer 26-093. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpa- og Gufufjörð. Innifalið í verkinu er bygging 210 m langrar netbogabrúar með steyptu gólfi yfir Djúpafjörð.

Helstu magntölur eru áætlaðar: Vegagerð: Vegrið 6.150 m. Landstöplar: Stálrörsstaurar (vestari landstöpull) 270 m, Steypustyrktarjárn í sökkla og stöpla 55 tonn, Steypustyrktarjárn í staura 14 tonn, Legur 4 stk., Bergboltar 10 stk. Stálvirki yfirbyggingar: Smíði og uppsetning stálvirkja 865 tonn, Hengistangir 48 tonn. Brúargólf: Steypustyrktarjárn (staðsteypt) 87 tonn, Vegrið á brú 424 m, Tengivegrið 80 m, Forsteyptar einingar í brúargólf 252 stk., Sigplötur 2 stk., Þenslurauf 12 m, Ídráttarrör 4 tonn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 10. júní 2026. Skilafrestur er 14. júlí 2026 kl. 14:00 og opnun tilboða fer fram 14. júlí 2026 kl. 14:15. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur. Eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. Verkinu á að ljúka 1. október 2028.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →