Verslun Pennans Eymundsson í Vík fer vel af stað
Verslun Pennans Eymundsson í Vík í Mýrdal hefur farið vel af stað eftir opnun um miðjan apríl í nýbyggðu húsnæði. Húsnæðið, sem er 1.023 fermetrar að stærð, er talið mikil lyftistöng fyrir íbúa svæðisins.
Um miðjan apríl opnaði Penninn Eymundsson verslun að Smiðjuvegi 7 í Vík í Mýrdal.
Verslunin er staðsett í glænýju húsnæði sem Penninn ehf. byggði, en húsnæðið þykir mikil lyftistöng fyrir Mýrdælinga.
Húsnæðið er alls 1.023 fermetrar að stærð, þar af eru 623 fermetrar verslun Pennans. Í sama húsnæði er einnig ráðhús Mýrdalshrepps sem flutti þangað inn.
→ Lesa upprunaleg grein á Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska