Verðkönnun – Endurnýjun Sindravallar, verkfræðihönnun

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir verðtilboðum í verkfræðihönnun vegna fyrirhugaðrar endurnýjunar á knattspyrnuvelli og frjálsíþróttabraut á Sindravöllum, Höfn í Hornafirði. Kaupandi óskar eftir verðtilboði fyrir allt áætlað umfang verkfræðihön

Verðkönnun – Endurnýjun Sindravallar, verkfræðihönnun
Mynd: Leticia Golubov / Pexels

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir verðtilboðum í verkfræðihönnun vegna fyrirhugaðrar endurnýjunar á knattspyrnuvelli og frjálsíþróttabraut á Sindravöllum, Höfn í Hornafirði. Kaupandi óskar eftir verðtilboði fyrir allt áætlað umfang verkfræðihönnunar, þar með talið gerð útboðsgagna.

Á Sindravöllum eru nú knattspyrnuvöllur og frjálsíþróttabraut sem UMF Sindri, nemendur skólanna og íbúar Hornafjarðar nota. Áformað er að endurnýja knattspyrnuvöllinn með gervigrasi og frjálsíþróttabrautina með nýju tartan-yfirborði. Til að knattspyrnuvöllurinn uppfylli kröfur KSÍ þarf að breyta legu frjálsíþróttabrautarinnar. Þetta mun kalla á breytingar á yfirborðum, frárennsli, burðarlögum og staðbundinni jarðvinnu.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í október 2026. Til að það markmið náist þurfa allar endanlegar teikningar og útboðsgögn að berast kaupanda eigi síðar en 7. ágúst 2026. Verðtilboðið skal innihalda alla áætlaða verkfræðiráðgjöf, þar á meðal rýni á hugmyndalausn, verkfræðihönnun, breytingar á frárennslishönnun, hönnun burðarlaga og jarðvinnu, hönnun tenginga við aðliggjandi svæði, könnun á vökvunarkerfi og gerð útboðsgagna.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hornafjörður útboð

Heimild: Hornafjörður útboð

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →