Verðfyrirspurn vegna jarðvinnu og lagna á Sæbraut á Höfn í Hornafirði
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagnir á Sæbraut á Höfn í Hornafirði, með skilafresti 20. ágúst 2026.
Sveitarfélagið Hornafjörður, sem verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „SÆBRAUT – JARÐVINNA OG LAGNIR“ samkvæmt útboðsnúmeri 202604060. Verkið felst í því að grafa og koma fyrir regnvatnslögnum, brunni og niðurföllum í hluta Sæbrautar á Höfn í Hornafirði. Einnig skal tengja regnvatnslagnir við núverandi regnvatnsbrunn í götunni.
Verktaki skal grafa fyrir lögnum, útvega lagnaefni, leggja lagnirnar, sanda kringum þær og fylla í lagnaskurð og að brunni. Einnig skal jafna út fyllingu og ganga frá yfirborði. Umfram efni sem til fellur vegna uppgraftrar skal jafna út við hlið lagnaskurðar. Lagnirnar liggja alfarið í núverandi götu sem er með bundnu slitlagi. Verktaki skal kynna sér vel allar aðstæður á og í næsta nágrenni fyrirhugaðs vinnustaðar áður en hann gefur verð í verkið. Gert er ráð fyrir að gatan verði malbikuð haustið 2026 og skal verktaki samræma vinnu sína við umsjónarmann verkkaupa. Verkið skal hefjast um leið og tilboð hefur verið samþykkt og skal því vera að fullu lokið 1. október 2026. Skilafrestur tilboða er 20. ágúst 2026 kl. 14:45. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is