Verðfyrirspurn vegna endurnýjunar á yfirborðsefni á Bárunni á Hornafirði

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í niðurrif á gervigrasakerfi og undirbúning burðarlags fyrir nýtt gervigras á um 3.744 m² svæði, með skilafresti 25. júní 2026.

Verðfyrirspurn vegna endurnýjunar á yfirborðsefni á Bárunni á Hornafirði
Mynd: Stanislav Kondratiev / Pexels

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Báran – endurnýjun á yfirborðsefni – 1.áfangi“, númer 202605839. Verkið felst í niðurrifi núverandi gervigrasakerfis og undirbúningi burðarlags fyrir lagningu nýs gervigrass á um 3.744 m² svæði. Að framkvæmd lokinni skal vinnusvæði vera í því ástandi að það uppfylli allar kröfur útboðsgagna fyrir áframhaldandi framkvæmdir í síðari áfanga verksins. Verklok eru 31. júlí 2026. Skilafrestur tilboða er 25. júní 2026 kl. 11:00. Tilboð verða opnuð rafrænt sama dag og tíma. Ekki verður haldinn eiginlegur opnunarfundur þar sem bjóðendur geta verið viðstaddir. Allir bjóðendur fá senda tilkynningu um að opnun hafi farið fram og fá senda opnunarskýrslu á netfang sitt. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →