Verða að sjá breytingar í sumar til að kjarasamningum verði ekki sagt upp
Verðbólga mælist nú 5,2% og eru forsendur kjarasamninga í hættu ef ekki sjáanlegar breytingar í sumar. Formaður VR gagnrýnir fyrirtæki fyrir ábyrgðarleysi og verðhækkanir sem keyri áfram verðbólgu.
Verðbólga jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða og mældist 5,2 prósent í júní. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir þessa hækkun milli mánaða talsvert mikla og að það sem nú blasi við sé að forsendur kjarasamninga muni bresta í haust. Hægt er að segja kjarasamningum frá 2024 upp í haust ef ársverðbólga mælist yfir 4,7 prósentum. ASÍ, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld eiga í viðræðum um þessa stöðu.
Halla gagnrýnir harðlega verðhækkanir hjá fyrirtækjum og segir þau hafa sýnt af sér fullkomið ábyrgðarleysi á gildistíma kjarasamninga. Hún bendir á að fyrirtækin hafi átt að reyna að halda aftur af verðhækkunum, en tilraunir til að höfða til ábyrgðarkenndar þeirra hafi skilað mjög litlu. Verðhækkanir séu að keyra áfram verðbólguna og umtalsvert af þeim sé innanlandsvandamál. Hún nefnir sérstaklega hækkun á innlendri matvöru, húsaleigu, húsnæðiskostnaði og gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga. „Þetta var bara ekki samkomulagið. Við sjáum það að það eru sannarlega ekki allir að spila með, það er búið að vera þak á kjarasamningsbundnum hækkunum, en ekki þak á neinu öðru,“ segir Halla.
Áhrifamestu þættirnir á verðbólgumælingu í júní voru hækkandi flugfargjöld til útlanda, hækkun á gistiþjónustu og aukinn kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði. VR hefur áhyggjur af stöðunni og leggur áherslu á að þörf sé á breytingum í sumar, áður en forsenduákvæðin koma til umræðu. Annars verði erfitt að sannfæra félagsmenn um að kjarasamningar haldi áfram gildi sínu.
Heimild: RÚV