Vel sóttur kynningarfundur um Sæbrautarstokk

Á annað hundrað manns sóttu kynningarfund um Sæbrautarstokk sem haldinn var í Vogaskóla í gær, þriðjudaginn 2. júní 2026. Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur stóðu fyrir fundinum, þar sem verkefnið var kynnt ásamt tillögu að nýju deiliskip

Vel sóttur kynningarfundur um Sæbrautarstokk
Mynd: Freysteinn G Jonsson / Pexels

Á annað hundrað manns sóttu kynningarfund um Sæbrautarstokk sem haldinn var í Vogaskóla í gær, þriðjudaginn 2. júní 2026. Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur stóðu fyrir fundinum, þar sem verkefnið var kynnt ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi og niðurstöðum umhverfismats.

Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, stýrði fundinum og fór yfir helstu atriði Samgöngusáttmálans. Kristján Árni Kristjánsson, verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni, kynnti verkefnið sjálft. Þórhildur Guðmundsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís, kynnti niðurstöður umhverfismats, og Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís arkitektum, ásamt Sigríði Magnúsdóttur, arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð, kynntu tillögu að nýju deiliskipulagi vegna Sæbrautarstokks, auk breytinga á deiliskipulagi Vogahverfis og Vogabyggðar 2.

Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og mun liggja á um það bil eins kílómetra löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins er gert ráð fyrir nýjum, grænum hverfisgarði sem mun tengja saman Vogahverfi og Vogabyggð. Markmið verkefnisins er að bæta umhverfisgæði, tengja hverfi betur saman, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og greiða götu Borgarlínunnar. Mannvirkið er einnig ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar. Opið er fyrir athugasemdir vegna skipulagstillögu til 24. júní og umhverfismatsskýrslu til 29. júní.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg

Heimild: Reykjavíkurborg

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →