Vel heppnaður samráðsfundur vegna framtíðarsýnar Gamla bæjarins á Sauðárkróki
Yfir 100 íbúar komu saman á fundi um deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki til að ræða framtíðarsýn svæðisins. Fundurinn var haldinn á fyrstu stigum skipulagsvinnunnar til að tryggja áhrif íbúa.
Samráðsfundur um deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki fór fram í Árskóla í gær. Yfir 100 íbúar komu saman til að ræða framtíðarsýn og þróun svæðisins.
Fundurinn var haldinn á fyrstu stigum skipulagsvinnunnar til að tryggja að íbúar fengju tækifæri til að hafa áhrif á mótun deiliskipulagsins.
Á fundinum kynntu Páll Jakob Líndal, dr. í umhverfissálfræði, og Hannes Vilhjálmsson verkefnið. Þeir fóru yfir markmið skipulagsvinnunnar, helstu frumforsendur og sérstöðu svæðisins. Jafnframt sýndu þeir þrívíddargagnagrunn sem verður nýttur við gerð deiliskipulagsins til að sýna þróun og mögulegar útfærslur á vinnslutíma.
Að kynningu lokinni fengu fundargestir spurningalista til að kalla fram hugmyndir og skoðanir þeirra á svæðinu. Niðurstöðurnar úr spurningalistanum verða nýttar sem mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnu við mótun deiliskipulagsins fyrir Gamla bæinn á Sauðárkróki.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sveitarfélagið Skagafjörður
Heimild: Sveitarfélagið Skagafjörður