Veitur óska eftir tilboðum í endurnýjun á hitaveitulögn í Skorholti og Bakka

Veitur óska eftir tilboðum í endurnýjun á hitaveitulögn í Skorholti og Bakka, með skilafresti 5. nóvember 2026.

Veitur óska eftir tilboðum í endurnýjun á hitaveitulögn í Skorholti og Bakka
Mynd: Sergei Starostin / Pexels

Veitur óska eftir tilboðum í verkið VEU-2609-0066 „HAB: SKORHOLT, BAKKI“. Verkefnið felur í sér endurnýjun á um 1550 metra löngum kafla HAB í landi Skorholts og Bakka. Lögð verður ný DN450 foreinangruð hitaveitulögn í nýrri legu frá festu í landi Bakka, merkt DT-362, að hitaveitubrunni í landi Skorholts, merktur DT-370. Ný lagnalega er um 1900 metrar. Einnig felur verkefnið í sér niðurrifi á brunnum merktum DT-363, DT-364, DT-369 og DT-370. Að tengingu nýrrar lagnar lokinni skal verktaki fjarlægja núverandi Ø400 asbest lögn og allan búnað tengdum henni ásamt frágangi á yfirborði lagnastæðis beggja lagna. Verkkaupi útvegar allt efni í hitaveitu, svo sem rör, fittings, loka, hólka og krumpur. Verktaki útvegar allt annað efni sem þarf til að vinna verkið. Einnig útvegar verkkaupi efni í ræsi undir hitaveitupípur. Skilafrestur er 5. nóvember 2026 kl. 14:00.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn