Húsfyllir á íbúafundi í Mosfellsbæ

Húsfyllir á íbúafundi í Mosfellsbæ
David Elvar Masson

Mikill áhugi var á innviðamálum í Mosfellsbæ í gærkvöldi, 22. júní, þegar Veitur í samstarfi við bæjarfélagið héldu íbúafund í Hlégarði. Húsfyllir var á fundinum sem sýnir vel hversu mikilvæg vatnsveitumál eru almenningi í Mosfellsbæ.

Fundurinn hófst með ávarpi Hilmars Gunnarssonar bæjarstjóra, áður en Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum, tók við og fór yfir boranir í Skammadal. Hún kynnti einnig þær mótvægisaðgerðir sem gripið hefur verið til til að hreinsa grugg úr borvatninu, en grugg hefur verið umdeilt í umræðunni.

Sérfræðingar frá ÍSOR, Orkuveitunni og VSÓ Ráðgjöf kynntu nánar ástæður borana í Skammadal, tímalínu verksins og hvers vegna vatn gruggast við borun. Þá voru kynntar fyrstu niðurstöður vöktunar á lífríki í og við Varmá, en áin hefur verið í brennidepli vegna gruggsins.

Umræður voru líflegar og sýndu að bæjarbúum er umhugað um umhverfi Varmár. Gagnrýni beindist að Veitum fyrir að hafa veitt gruggugu borvatni út í ána. Íbúar, sem þekkja umhverfið vel, lýstu áhyggjum sínum af fuglalífi við ána, sem þeir telja hafa minnkað töluvert eftir að borvatnið fór í hana. Þar sem lítið hefur verið skrásett af rannsóknum á fuglalífi við Varmá, treysta Veitur á þekkingu íbúa á svæðinu.

Veitur taka áhyggjur af mögulegum áhrifum gruggsins á lífríkið alvarlega og hafa unnið með fag- og eftirlitsaðilum að mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna frá því að boranir voru stöðvaðar. Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun og Verkís hafa farið í frumathuganir á stöðu lífríkis Skammadalslækjar og Varmár. VSÓ Ráðgjöf, sem fer með umhverfiseftirlit framkvæmdarinnar fyrir Veitur, hefur fylgst vel með svæðinu og tekið sýni til efnagreininga.

Fyrstu niðurstöður frá þessum fagaðilum líta vel út. Engar vísbendingar hafa komið fram um fiskdauða eða umfangsmikið tjón á lífríki árinnar eða fækkun fugla. Grugg sést þó á hluta árbotnsins og á stöku stöðum á bökkum og steinum þar sem vatnsborð hefur lækkað.

Heimild: Veitur ohf. (https://www.veitur.is/frettir/husfyllir-a-ibuafundi-i-mosfellsbae-) | Mynd: David Elvar Masson / Pexels

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →